Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,1 - 1,3 prósentustig. Næstum 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, 18% Framsóknarflokkinn, nær 12% Pírata, rúmlega 11% Vinstri græn og Samfylkinguna, um 9% Viðreisn, liðlega 8% Flokk fólksins og tæplega 4% Miðflokkinn og Sósíalistaflokk Íslands.

Fylgi flokka í mars 2022

Næstum 7% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og tæplega 9% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Nær 61% þeirra sem taka afstöðu segist styðja ríkisstjórnina sem er um þremur prósentustigum meira en í síðasta mánuði.

Stuðningur við ríkisstjórn og stjórnarflokka í mars 2022.JPG

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 31. mars 2022. Heildarúrtaksstærð var 10.941 og þátttökuhlutfall var 49,6%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,5-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup