Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um fjögur prósentustig milli mánaða samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup, en rúmlega 46% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,1-2,3 prósentustig, og eru ekki tölfræðilega marktækar. Tæplega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag, nær 19% Samfylkinguna, 12% Miðflokkinn, tæplega 11% Vinstri græn, rúmlega 10% Pírata og næstum 10% Viðreisn. Rösklega 7% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn, ríflega 6% Flokk fólksins og tæplega 2% segjast myndu kjósa aðra flokka, þar af rúmlega 1% Sósíalistaflokk Íslands. Næstum 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Í síðustu viku voru birtar fréttir af upptöku á samræðum nokkurra þingmanna á bar, sem vakið hafa hneykslan. Þegar fylgi hvers flokks er borið saman annars vegar áður en fréttirnar voru birtar og hins vegar eftir að þær voru birtar, mælist fylgi Miðflokksins lægra nú, eða ríflega 8% miðað við tæplega 13% áður. Ekki kemur fram marktækur munur hjá öðrum flokkum.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 3. nóvember til 2. desember 2018. Heildarúrtaksstærð var 5.319 og þátttökuhlutfall var 58,3%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,5-1,7%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup