Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um nær sjö prósentustig milli mælinga og segjast rúmlega 55% þeirra sem taka afstöðu styðja hana. Stuðningur við stjórnina hefur ekki mælst hærri síðan í apríl 2018. Meiri stuðningur mældist við ríkisstjórnina seinni hluta marsmánaðar en fyrri hluta hans, en rösklega 59% sögðust styðja stjórnina seinni hluta mánaðarins samanborið við tæplega 52% fyrri hluta hans.

Miðflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn tapa fylgi

Helstu breytingar á fylgi flokka frá síðustu mælingu eru að Miðflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn tapa fylgi eftir mikla fylgisaukningu í febrúar. Fylgi Miðflokksins minnkar um þrjú prósentustig, en rúmlega 11% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi Sósíalistaflokksins minnkar um tæplega tvö prósentustig, en ríflega 3% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,1-1,5 prósentustig. Rösklega 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, liðlega 15% Samfylkinguna, ríflega 13% Vinstri græn, um 11% Viðreisn, rúmlega 10% Pírata, liðlega 8% Framsóknarflokkinn og rúmlega 4% Flokk fólksins. Liðlega 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og sama hlutfall tekur ekki afstöðu eða neitar að gefa hana upp.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. til 29. mars 2020. Heildarúrtaksstærð var 10.352 og þátttökuhlutfall var 54,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,3%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup