Ríflega 44% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina sem eru um 3 prósentustigum færri en í síðasta mánuði. Þetta er svipað hlutfall og sitjandi ríkisstjórn hefur minnst mælst með, en það var í desember 2018.

Stuðningur við ríkisstjórn í maí 2022

Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða og minnkar fylgi Vinstri grænna og Flokks fólksins á sama tíma og fylgi Framsóknarflokksins eykst. Liðlega 8% segjast myndu kjósa Vinstri græn færu kosningar til Alþingis fram í dag, sem eru um tveimur prósentustigum færri en í síðustu mælingu. Þetta er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan í aðdraganda alþingiskosninga 2013. Fylgi Flokks fólksins minnkar um ríflega eitt prósentustig milli mælinga, en rösklega 6% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi Framsóknarflokksins eykst um nær tvö prósentustig, en tæplega 18% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag.

Fylgi flokka í maí 2022

Fylgi annarra flokka breytist lítið eða um á bilinu 0,1 - 0,4 prósentustig. Liðlega 20% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, næstum 15% Pírata, liðlega 14% Samfylkinguna, tæplega 10% Viðreisn, 5% Sósíalistaflokk Íslands og rúmlega 4% Miðflokkinn.

Rúmlega 7% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og liðlega 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. til 31. maí 2022. Heildarúrtaksstærð var 10.548 og þátttökuhlutfall var 51,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup