Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða, eða á bilinu 0 - 0,9 prósentustig. Rösklega 22% segjast myndu kjósa Sjálfstæðis-flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, 17% Framsóknarflokkinn, tæplega 13% Pírata, nær 11% Samfylkinguna, nær sama hlutfall Vinstri græn, ríflega 9% Viðreisn, næstum 9% Flokk fólksins, rúmlega 4% Sósíalistaflokk Íslands og tæplega 4% Miðflokkinn.

Fylgi flokka janúar 2022

Tæplega 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og liðlega 8% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Rúmlega 59% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn og stjórnarflokka

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 6. til 31. janúar 2022. Heildarúrtaksstærð var 10.911 og þátttökuhlutfall var 50,4%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,5-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup