Stuðningur við ríkisstjórnina hefur ekki mælst minni síðan í ársbyrjun 2020 samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Ríflega 47% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina sem erum 14 prósentustigum færri en í síðasta mánuði.

Stuðningur við ríkisstjórn og afstaða fólks

Sjálfstæðisflokkur og framsókn tapa fylgi

Verulegar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða og minnkar fylgi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á sama tíma og fylgi Pírata og Samfylkingar eykst. Tæplega 20% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, sem er um þremur prósentustigum færri en í síðustu mælingu. Þetta er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með í Þjóðarpúlsi Gallup en mælingar hófust árið 1993. Eftir bankahrun, í nóvember 2008, mældist hann með tæplega 21% fylgi.

Fylgi flokka í apríl 2022

Fylgi Framsóknarflokksins minnkar um ríflega tvö prósentustig milli mælinga, en tæplega 16% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi Pírata og Samfylkingar eykst um tæplega þrjú prósentustig hjá hvorum flokki, en rösklega 14% segjast myndu kjósa Pírata og nær 14% Samfylkinguna færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0,4 - 1,3 prósentustig. Liðlega 10% segjast myndu kjósa Vinstri græn, tæplega 10% Viðreisn, næstum 8% Flokk fólksins, tæplega 5% Sósíalistaflokk Íslands og liðlega 4% Miðflokkinn.

Rúmlega 8% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Spurt var:

  1. Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  2. En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  3. Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  4. Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. apríl til 1. maí 2022. Heildarúrtaksstærð var 9.828 og þátttökuhlutfall var 50,1%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup