Gallup veitti Geðhjálp styrk að upphæð 150.000 kr. nú á dögunum. Fyrir stuttu gerði Gallup könnun þar sem þátttakendur fengu gjafabréf að launum fyrir þátttöku sína en gátu valið að andvirði gjafabréfsins rynni til Geðhjálpar í staðinn. Fjöldi þátttakenda ákvað að ánafna sinni umbun til Geðhjálpar og er styrkurinn veittur fyrir hönd þessara þátttakenda. Það er von okkar að styrkurinn komi að góðum notum hjá félaginu. Var það ósk Gallup að styrkurinn yrði nýttur til að vinna að bættri þjónustu fyrir ungt fólk.

Á myndinni tekur Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, við staðfestingu á styrknum úr höndum Þórhalls Ólafssonar, fulltrúa Gallup.