Gallup veitti Ljósinu styrk að upphæð 150.000 kr. í dag. Styrkurinn er veittur fyrir hönd þeirra meðlima í Viðhorfahópi Gallup sem ánöfnuðu umbun sinni fyrir þátttöku í könnun til Ljóssins. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu- og stuðning, þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek, auk þess að fá stuðning við að setja sér markmið sem auka daglega virkni og hafa þannig áhrif á lífsgæði almennt. Á meðfylgjandi mynd má sjá Ernu Magnúsdóttir veita styrknum viðtöku fyrir hönd Ljóssins úr höndum Sóleyjar Valdimarsdóttur starfsmanns Gallup.

Nýjar fréttir
17. ágúst 2026
ESB - Þjóðaratkvæðagreiðsla
5. ágúst 2026
Litlar breytingar á fylgi
2. júlí 2026
Nokkur hreyfing á fylgi
30. júní 2026
Áfram þungskýjað
29. júní 2026
ESB - mjótt á munum
19. júní 2026
Tekur þú vítamín?
2. júní 2026
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur bæta við sig fylgi, en Flokkur fólksins tapar fylgi