Niðurstöður um vítamínnotkun landsmanna úr árlegri Neyslu- og lífstílkönnun Gallup benda til verulegrar aukningar í inntöku vítamína. Fyrir tveimur áratugum tók rúmlega þriðjungur svarenda vítamín vikulega, en það hlutfall hefur hækkað jafnt og þétt síðustu ár og á árinu 2025 var hlutfallið komið í 74%.
Þegar vítamínnotkun er skoðuð eftir lýðfræðilegum þáttum kemur í ljós að eldri konur eru duglegastar að taka vítamínin sín á meðan yngri karlar draga lestina.
Gallup varpar ljósi á íslenskt samfélag og þetta er eitt af því sem við sjáum að er að breytast.

