Samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup fjölgar þeim Íslendingum sem ferðast til útlanda í sumarfríinu.

Utanlandsferðir

Nær 55% ferðuðust til útlanda síðastliðið sumar. Það eru fleiri en í fyrrasumar en þá hafði fjöldi þeirra sem ferðuðust til útlanda einnig aukist. Fjöldi þeirra sem ferðast til útlanda í sumarfríinu hefur aukist nokkuð jafnt og þétt frá því fyrst var spurt 2010 en þá hafði þriðji hver svarandi ferðast til útlanda um sumarið.

Ferðaðist þú til útlanda okt 2016

Utanlandsferðir eru talsvert algengari meðal íbúa höfuðborgarsvæðisins en landsbyggðarinnar. Þær eru einnig algengari meðal þeirra sem hafa lokið háskólaprófi en þeirra sem hafa minni menntun að baki, og algengari meðal fjölskyldna sem hafa samanlagt 400.000 kr. á mánuði í tekjur eða meira, heldur en meðal fjölskyldna sem hafa lægri fjölskyldutekjur.

Útlönd greiningar okt 2016

Ferðalög innanlands

Þrír af hverjum fjórum ferðuðust innanlands í sumar. Færri ferðuðust innanlands síðustu tvö sumur en á árunum 2010-2012.

Ferðaðist þú innanlands nóv 2016

Ferðalög innanlands eru algengari meðal þeirra sem hafa lokið háskólaprófi en þeirra sem hafa minni menntun að baki.

Ferðavenjur greiningar okt 2016

Gistinætur

Þeir sem ferðuðust til útlanda gistu hver samtals nærri 13 nætur að meðaltali á ferðalögum sínum og þeir sem ferðuðust innanlands gistu hver samtals næstum 9 nætur að meðaltali. Þetta er svipaður fjöldi gistinátta og síðustu ár.

Meðalfjöldi gistinátta okt 2016

Spurt var

  • Ferðaðist þú eitthvað til útlanda í sumar?
  • Ferðaðist þú eitthvað innanlands í sumar?
  • Hversu margar nætur gistir þú samtals í útlöndum í sumar?
  • Hversu margar nætur gistir þú samtals á ferðalögum þínum innanlands í sumar?

Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem gerð var dagana 15. - 26. september 2016. Heildarúrtaksstærð var 1.434 og þátttökuhlutfall var 58,8%. Einstaklingar voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup