Óverulegar breytingar eru á fylgi flokka milli mælinga eða á bilinu 0,1 - 1,0 prósentustig. Nær 23% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 17% Framsóknarflokkinn, 13% Vinstri græn, næstum 12% Pírata, tæplega 11% Samfylkinguna, rösklega 8% Viðreisn, 8% Flokk fólksins, ríflega 4% Sósíalistaflokk Íslands og nálægt 4% Miðflokkinn.

Fylgi flokka

Rösklega 6% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og 7% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Liðlega 60% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

2021-12-02 Stuðningur við ríkisstjórn.JPG

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina?”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 30. nóvember 2021. Heildarúrtaksstærð var 10.000 og þátttökuhlutfall var 51,0%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup