Þjóðverjar taldir best undirbúnir fyrir ferðalag um Ísland
Starfsfólk í ferðaþjónustu telur ferðamenn frá Þýskalandi best undirbúna fyrir ferðalög um Ísland. Ferðamenn frá Kanada og Bandaríkjunum eru einnig oft taldir koma vel undirbúnir, samkvæmt könnun Gallup sem gerð var í samstarfi við Guide to Iceland.
Bandarískir ferðamenn eru oftast taldir auðveldastir í samskiptum. Þar á eftir koma ferðamenn frá Bretlandi og Kanada. Þegar spurt er hvaða ferðamenn séu líklegastir til að fylgja íslenskum öryggis- og umhverfisleiðbeiningum eru ferðamenn frá Þýskalandi oftast nefndir, en þar á eftir koma ferðamenn frá Bandaríkjunum og Bretlandi.
Kínverskir ferðamenn eru aftur á móti oftast nefndir þegar spurt er um erfið samskipti, áskoranir í þjónustu og hvaða ferðamenn séu líklegastir til að hunsa íslenskar öryggis- og umhverfisleiðbeiningar. Ferðamenn frá Frakklandi og Ítalíu eru einnig oftar nefndir í tengslum við erfið samskipti, en Bandaríkjamenn og Frakkar koma næst á eftir Kínverjum þegar spurt er um áskoranir í þjónustu.
Könnunin var framkvæmd frá 15. desember 2025 til 5. janúar 2026 meðal starfsfólks í ferðaþjónustu á Íslandi. Alls svöruðu 427 einstaklingar..
Niðurstöðurnar sýna að starfsfólk í ferðaþjónustu upplifir töluverðan mun milli ferðamanna eftir upprunalandi, bæði hvað varðar samskipti, undirbúning og fylgni við öryggis- og umhverfisleiðbeiningar. Mögulegar leiðir til að mæta þessum áskorunum gætu falist í skýrari upplýsingagjöf, leiðbeiningum á fleiri tungumálum og aukinni áherslu á undirbúning ferðamanna, með það að markmiði að draga úr misskilningi og stuðla að öruggari og betri upplifun á Íslandi.
Nánari upplýsingar um könnunina má finna á vef hér.
