Þann 18. janúar næstkomandi verður Umhverfisráðstefna Gallup haldin í annað sinn, í Norðurljósasal Hörpu. Á ráðstefnunni verða glænýjar niðurstöður Umhverfiskönnunar Gallup kynntar, en þar verður farið yfir viðhorf og hegðun Íslendinga í tengslum við umhverfismál og loftslagsbreytingar.

Í kjölfarið munu samstarfsaðilar Gallup ásamt Höllu Hrund Logadóttur frá Arctic Initiative halda örerindi og kynna hvernig þau horfa til framtíðar varðandi umhverfismál og loftslagsbreytingar.

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson flytur ávarp og ráðstefnustjóri er Arna Frímannsdóttir frá Gallup.