Helstu breytingar á fylgi flokka milli mánaða eru hjá Viðreisn, Samfylkingu og Vinstri grænum. Viðreisn bætir við sig tveimur prósentustigum en rösklega 10% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi við Samfylkinguna minnkar um nær þrjú prósentustig og fylgi Vinstri grænna um nær tvö prósentustig milli mánaða. Rúmlega 15% segjast ætla að kjósa Samfylkinguna og rösklega 11% Vinstri græn. Fylgi annarra framboða breytist lítið eða um á bilinu 0,1-1,0 prósentustig. Tæplega 25% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, liðlega 13% Pírata, rösklega 8% Framsóknarflokkinn, 8% Miðflokkinn og liðlega 5% Flokk fólksins. Tæplega 4% segjast myndu kjósa aðra flokka en þá sem sæti eiga á Alþingi í dag, þar af 1% Sósíalistaflokk Íslands. Rúmlega 7% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og liðlega 9% taka ekki
afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Fylgi flokka júní 2018

Fylgi við ríkisstjórnina stendur í stað milli mánaða, en nær 54% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.

Stuðningur við ríkisstjórn júní 2018

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 31. maí til 1. júlí 2018. Heildarúrtaksstærð var 5.875 og
þátttökuhlutfall var 55,2%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,3-1,6%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup