Í tilefni af Alþjóðlegum degi besta vinar, þann 8. júní, stóð Gallup fyrir morgunverðarfundi þann 12. júní, þar sem niðurstöður rannsókna á helgun, vellíðan, áhrifum fjarvinnu og ástæðum starfsloka voru kynntar. Á fundinum var vaktin athygli á mikilvægi vináttu á vinnustað og tengsl hennar við vellíðan, helgun og frammistöðu teyma.
Helgun og vellíðan – hver er munurinn og af hverju skiptir það máli?
Helgun (e. employee engagement) á sér stað þegar starfsfólki er skapað styðjandi og hvetjandi starfsumhverfi. Helgað starfsfólk vinnur af ástríðu, er áhugasamt um vinnuna og leggur sig fram í starfi sínu á hverjum degi. Vellíðan (e. wellbeing) er hins vegar heildrænt ástand sem nær yfir líkamlega, félagslega, fjárhagslega, samfélagslega og starfslega velferð.
Í State of the Global Workplace 2025 kemur fram að hlutfall helgaðs starfsfólks á heimsvísu sé að lækka í fyrsta skipti frá því í heimsfaraldrinum. Einnig kemur fram að 33% starfsfólks sem telja sig „blómstra“ (e. thriving) í lífinu, sem undirstrikar mikilvægi þess að huga að vellíðan samhliða styðjandi starfsumhverfi.
„Ég á besta vin í vinnunni“ – er vinátta á vinnustað vanmetin?
Ein umdeildasta, en jafnframt ein áhugaverðasta, spurningin í Q¹² helgunarkönnun Gallup er „Ég á besta vin í vinnunni.“ Hún mælist ítrekað ein sterkasta forspá um árangur teyma og líðan starfsfólks.
Af hverju skiptir þetta máli?
Starfsfólk sem á besta vin í vinnunni er:
- Líklegra til að segjast eiga í betra samstarfi og samskiptum innan vinnustaðarins.
- Ólíklegra til að segjast einmanna.
Um 26% starfsfólks á Íslandi 25-64 ára eru mjög sammála því að eiga besta vin í vinnunni, sem bendir til þess að fyrirtæki hafi tækifæri til að styrkja félagsleg tengsl á vinnustað.
Með því að skapa umhverfi þar sem fólk getur myndað raunveruleg vináttutengsl, geta vinnustaðir byggt upp sterkari teymi, bætt frammistöðu, dregið úr einmannaleika og aukið ánægju starfsfólks.
Fjarvinna – sveigjanleiki, vellíðan og ný viðmið
Fyrir faraldurinn var fjarvinna ekki mikið í umræðunni. Í COVID breyttist heimur vinnunnar. Fjölmargir unnu heima – þ.e. í þeim starfsstéttum sem það gátu. Þess ber að geta að um tveir af fimm segjast ekki geta unnið fjarvinnu í störfum sínum. Í dag er hlutfall starfsfólks sem vinnur fjarvinnu hærra en það var fyrir COVID þó mun færri vinni fjarvinnu nú en þegar mest var í COVID. Mælingar Gallup sýna að fáir vinna um alla daga í fjarvinnu, heldur vinna flestir svokallaða „tvinnvinnu“ (e. hybrid work) þar sem bæði er unnið heima og á vinnustað.
Dæmi um tækifæri og kosti fjar- og tvinnvinnu eru:
- Bætt jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
- Sparaður ferðatími.
- Aukin stjórn á umhverfi og aðstæðum.
- Aukin afköst.
Dæmi um áskoranir fjar- og tvinnvinnu:
- Einmanaleiki og skortur á félagslegum tengslum.
- Erfiðleikar við samvinnu.
- Tækniörðugleikar og ófullnægjandi aðstæður heima.
- Meiri ábyrgð lögð á einstakling við skipulag og ákvarðanir. Mögulegt markaleysi.
Gögn Gallup í Bandaríkjunum sýna að þótt starfsfólk í fjarvinnu sé helgaðra en annað starfsfólk, þá eru neikvæðar tilfinningar tíðari meðal fjarvinnuhópsins, svo sem sorg, reiði og einmanaleiki. Rætt var um nokkrar mögulegar ástæður fyrir þessu.
Áhrif á tryggð og starfsleit
Meira en helmingur starfandi fólks á Íslandi er annaðhvort að leita að starfi eða opið fyrir tækifærum.
Niðurstöður Gallup sýna að starfsfólk sem telur sig síður hafa tækifæri til vaxtar, telur sig síður hafa tækifæri til að nýta styrkleika sína, er síður ánægt í starfinu, eða ber síður traust til stjórnenda er líklegra til að vera í atvinnuleit, svo nokkur dæmi séu tekin um samband starfsumhverfis og starfsleitar.
Sýndar voru niðurstöður úr starfslokakönnunum (Exit könnunum Gallup), en með þeim geta vinnustaðir greint ástæður þess að fólk hættir og brugðist við með viðeigandi hætti. Fjölmörg fyrirtæki nýta sér onboarding og exiting kannanir í GallupAccess til að tryggja að reynsla starfsfólks (e. employee experience) sé með sem bestum hætti.
Hvað geta vinnustaðir gert?
Á fundinum voru kynntar leiðbeiningar til stjórnenda og mannauðsstjóra sem vilja efla tengsl, traust og tryggð á vinnustað:
- Stuðla að tengslamyndun í nýliðaferlinu og með teymisvinnu.
- Fagna sigrum og lífsviðburðum með starfsfólki.
- Beita styrkleikamiðaðri stjórnun.
- Tryggja skýr hlutverk og reglulega endurgjöf, helst vikuleg check-ins með öllu starfsfólki.
- Hlúa sérstaklega að vellíðan starfsfólks í fjarvinnu.
- Innleiða og nýta innsýn úr Q¹² mælitækinu, þar sem skýr hlutverk, nýting styrkleika, viðurkenning, áhrif og umboð, vinátta og þróun starfsfólks eru lykilatriði. GallupAccess veitir stjórnendum aðstoð við að bregðast við áskorunum í starfsumhverfinu.
Fyrir frekari spurningar endilega hafið samband á stjornendaradgjof@gallup.is