Vinstri græn mælast með fimm prósentustigum meira fylgi en þau fengu í nýafstöðnum alþingiskosningum, en nær 21% þeirra sem tóku afstöðu segist myndi kjósa flokkinn nú samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi Bjartrar framtíðar hefur einnig aukist frá kosningum og segjast tæplega 9% myndu kjósa flokkinn nú.

Fylgi flokka des 2016

Fylgi Framsóknarflokksins og Viðreisnar mælist aftur á móti minna en flokkarnir fengu í nýafstöðnum alþingiskosningum. Nær jafnmargir nefna hvorn flokk um sig eða um 9%. Ef tekið er tillit til vikmarka mælist engin breyting á fylgi annarra flokka. Um 28% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, næstum 14% Pírata, rúmlega 5% Samfylkinguna og 3% Flokk fólksins. Næstum 3% nefna aðra flokka og þar af tæplega 2% Dögun. Liðlega 6% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 7% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við þremur spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?"
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu"?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?"

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr net- og símakönnun sem Gallup gerði dagana 10. - 29. nóvember 2016. Heildarúrtaksstærð var 5.207 og þátttökuhlutfall var 57,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,7-1,7%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup