Helstu breytingar á fylgi flokka frá síðustu mælingu eru að Vinstri græn og Samfylkingin tapa fylgi. Fylgi Vinstri grænna lækkar um þrjú prósentustig milli mælinga, en næstum 11% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um tvö prósentustig en nær 14% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,3-1,2 prósentustig. Næstum 23% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 13% Miðflokkinn, 12% Viðreisn, rúmlega 11% Pírata, tæplega 9% Framsóknarflokkinn, rúmlega 4% Flokk fólksins og ríflega 3% Sósíalistaflokk Íslands. Liðlega 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórn

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um þrjú prósentustig milli mælinga og segjast tæplega 47% þeirra sem taka afstöðu styðja stjórnina.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. desember 2019 til 1. janúar 2020. Heildarúrtaksstærð var 8.511 og þátttökuhlutfall var 52,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup