Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Helsta breytingin frá síðustu mælingu er að Vinstri græn bæta við sig fylgi en Viðreisn tapar fylgi. Nær 23% segjast myndu kjósa Vinstri græn sem er um þremur prósentustigum meira en fyrir mánuði. Fylgi við Vinstri græn hefur ekki mælst eins mikið síðan í maí 2010. Að sama skapi minnkar fylgi við Viðreisn um tvö prósentustig en rúmlega 5% segjast myndu kjósa flokkinn nú.

Fylgi flokka Janúar 2017

Ekki er tölfræðilega marktæk breyting á fylgi annarra flokka milli mánaða og breytist fylgi þeirra um á bilinu 0,1 - 1,7 prósentustig. Slétt 28% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rösklega 13% Pírata, tæplega 11% Framsóknarflokkinn, ríflega 7% Samfylkinguna, sama hlutfall Bjarta framtíð og rúmlega 3% Flokk fólksins. Rúmlega tvö prósent nefna aðra flokka og þar af 1,2% Dögun.Ríflega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og nær 8% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Stuðningur við ríkisstjórn

Næstum 44% þeirra sem tóku afstöðu sögðust styðja ríkisstjórnina.1

Stuðningur við ríkisstjórn janúar 2017

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?”
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”?
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina"

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 5. til 29. janúar 2017. Heildarúrtaksstærð var 4.288 og þátttökuhlutfall var 57,0%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 1,0-2,0%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup

1 Spurningin um stuðning við ríkisstjórnina kom inn í mælinguna 12. janúar