Heilt yfir eru litlar breytingar á fylgi flokka milli mánaða en fylgi Vinstri grænna minnkar um nær þrjú prósentustig og fylgi Viðreisnar eykst um tæplega tvö prósentustig. Nær 14% segjast myndu kjósa Vinstri græn færu kosningar til Alþingis fram í dag og rösklega 8% segjast myndu kjósa Viðreisn. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka eða á bilinu 0,1 – 1,1 prósentustig. Rösklega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 16% Samfylkinguna, tæplega 13% Pírata, rúmlega 9% Framsóknarflokkinn, nær 9% Miðflokkinn, um 5% Flokk fólksins og rösklega 1% aðra flokka. Tæplega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og ríflega 6% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Fylgi flokka mars 2018

Stuðningur við ríkisstjórn

Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um tæplega 4 prósentustig milli mánaða, en rúmlega 60% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.

Stuðningur við ríkisstjórn mars 2018

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 26. mars 2018. Heildarúrtaksstærð var 5.423 og þátttökuhlutfall var 57,0%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,3-1,6%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup