Taktu skrefið í styrkleikavegferðinni með Stjórnendaráðgjöf Gallup og fáðu alþjóðlega Gallup-vottun sem styrkleikaþjálfi!

Á þessu 4,5 daga námskeiði öðlast þú djúpan skilning á CliftonStrengths hugmyndafræðinni og færni í að leiða samtöl sem stuðla að vexti, árangri og jákvæðum breytingum – hvort sem er á vinnustaðnum, í skólaumhverfi eða sem sjálfstæður þjálfi.

Upplýsingar um námskeiðið

  • Dagsetning: 7.–11. september 2026
  • Tími: 8:30–17:00
  • Staðsetning: Lyngháls 4, Reykjavík
  • Tungumál: Enska
  • Leiðbeinandi: Christine Maree – Gallup Þýskaland
  • Verð: 850.000 kr.
    (kennslugögn, hádegismatur og hressing innifalið)
    • ATH: Sum stéttarfélög veita niðurgreiðslu á námskeiðum.
  • Skráningarfrestur: 12. júní 2026

Námskeiðið hentar þér ef þú vilt:

✅ Styðja starfsfólk og teymi með styrkleikamiðaðri nálgun
✅ Efla árangur og samvinnu
✅ Nota viðurkennda og prófaða aðferð til að bæta frammistöðu og leiðtogafærni

Á námskeiðinu öðlast þátttakendur:

  • Dýpri skilning á CliftonStrengths matinu og hugmyndafræðinni á bak við það
  • Hagnýta þjálfun í að leiða styrkleikamiðuð samtöl
  • Tæki og tól til að efla einstaklinga, teymi og vinnustaði

Nánar um námskeiðið: Gallup Global Strengths Coach

Til að ljúka Gallup-vottuninni þarf þátttakandi eftir námskeiðið að:

  1. Ljúka þjálfunarsamtölum við sex einstaklinga
  2. Standast lokapróf

Nánar um vottunarferlið

Skilyrði fyrir þátttöku: Þátttakendur þurfa að hafa tekið CliftonStrengths matið fyrir alla 34 styrkleikana fyrir upphaf námskeiðs.

➡️ Skráðu þig með því að senda póst á stjornendaradgjof@gallup.is
Ef skráning verður ekki næg, áskilur Gallup sér rétt til að fella námskeiðið niður með góðum fyrirvara.

Af hverju CliftonStrengths®?

CliftonStrengths snýst um að að efla það sem þú gerir náttúrulega vel. Þegar fólk þekkir og beitir eigin styrkleikum meðvitað eykst sjálfsvitund, traust og samvinna í teymum og það verður auðveldara að nýta fjölbreytta hæfileika til að ná árangri saman.

Styrkleikamiðuð þjálfun byggir á áratugalöngum rannsóknum Gallup og hefur sýnt fram á að:

  • Teymi sem vinna út frá styrkleikum sýna betri frammistöðu og meiri helgun
  • Einstaklingar upplifa aukna vellíðan og starfsánægju