Ferðamannapúlsinn lækkar um 2,1 stig milli mánaða og hefur aldrei mælst lægri. Einkunnin í desember er 80,6 stig af 100 mögulegum en var 82,7 stig í nóvember.

Ferðamannapúls desember 2017_heild

Spánverjar ánægðastir

Í desember var Ferðamannapúlsinn hæstur meðal ferðamanna frá Spáni eða 85,9 stig. Þar á eftir komu Frakkar með 83,8 stig og þá Bandaríkjamenn, Þjóðverjar og Kanadamenn. Ferðamannapúlsinn er lægstur meðal ferðamanna frá Malasíu, Singapúr og Írlandi.

Ferðamannapúls desember 2017 hæstu og lægstu

Allir undirþættir lækka milli mánaða

Allir undirþættir Ferðamannapúlsins lækka milli mánaða en mest lækka þættir sem snúa að því hvort Íslandsferðin hafi uppfyllt væntingar, hvort ferðin hafi verið peninganna virði sem og heildaránægja með Íslandsferðina en einkunn á heildaránægjuþættinum fer í fyrsta sinn undir 80 stig.

Ferðamannapúls desember 2017 undirþættir

Meiri ánægja með áramót en jól

Þeir ferðamenn sem dvöldu hér á landi yfir jól og/eða áramót voru spurðir hvort það hafi uppfyllt væntingar þeirra að eyða jólunum/áramótunum á Íslandi. Um 21% sagði að það að eyða jólunum á Íslandi hafi að öllu leyti uppfyllt væntingar og tæplega 37% sögðu það hafa að miklu leyti uppfyllt væntingar þeirra. Naumlega 28% sögðu það hafa uppfyllt væntingar þeirra að einhverju leyti en tæp 15% sögðu að það hafi að litlu eða engu leyti uppfyllt væntingar þeirra.

Hins vegar sögðu rúm 48% það hafa að öllu leyti uppfyllt væntingar sínar að eyða áramótunum á Íslandi og tæplega 34% sögðu það hafa að miklu leyti uppfyllt væntingar. Rúmlega 11% sögðu það hafa að einhverju leyti uppfyllt væntingar þeirra en naumlega 6% sögðu að það hafi að litlu eða engu leyti uppfyllt væntingar þeirra.

* Ferðamannapúlsinn er samstarfsverkefni Isavia, Ferðamálastofu og Gallup og byggja mælingar á netföngum ferðamanna sem fara í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Nánari upplýsingar um Ferðamannapúlsinn