Ferðamannapúlsinn breyttist lítið í mars og stendur í 83,6 stigum af 100 mögulegum en einkunnin í febrúar var 82,5 stig. Ef litið er til þess hvernig staðan var fyrir ári síðan þá er Ferðamannapúlsinn marktækt lægri nú en í mars 2016 þegar hann mældist 85,8 stig.

Ferðamannapúls mars 2017_heild

Í mars er Ferðamannapúlsinn hæstur meðal Pólverja eða 87,9 stig. Þar á eftir koma Bandaríkjamenn með 86,4 stig og þá Bretar, Danir og Þjóðverjar. Í mars var Ferðamannapúlsinn hins vegar lægstur meðal ferðamanna frá Írlandi og Hollandi.

Ferðamannapúls mars 2017_hæstu_lægstu

Ef undirþættir Ferðamannapúlsins eru skoðaðir nánar kemur í ljós að sá þáttur sem snýr að því hvort Íslandsferðin hafi uppfyllt væntingar, hækkar marktækt milli mánaða. Aðrir þættir breytast lítið milli mánaða. Þegar litið er til þess hvernig staðan var í mars 2016 þá hefur mat ferðamanna á því hvort ferðin hafi verið peninganna virði lækkað mest af undirþáttum Ferðamannapúlsins eða um 5,3 stig. Aðrir þættir hafa lækkað minna frá því sem var í mars 2016.

Ferðamannapúls mars 2017_undirþættir

* Ferðamannapúlsinn er samstarfsverkefni Isavia, Ferðamálastofu og Gallup og byggja mælingar á netföngum ferðamanna sem fara í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Nánari upplýsingar um Ferðamannapúlsinn