Helsta breyting á fylgi flokka milli mælinga er að fylgi Sósíalistaflokks Íslands minnkar um rúmt prósentustig. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0,1-1,2 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Nær 31% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag og hefur það hlutfall farið stöðugt hækkandi frá síðustu Alþingiskosningum. Næstum 22% kysu Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 14% Viðreisn, liðlega 9% Miðflokkinn, tæplega 8% Flokk fólksins, rösklega 5% Framsóknarflokkinn, tæplega 4% Vinstri græn, ríflega 3% Sósíalistaflokkinn og Pírata og nær 1% aðra flokka.

Tæplega 6% myndu skila auðu eða ekki kjósa og hátt í 13% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Slétt 67% þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina.

Fylgi_mai2025_Throunarmynd

Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér