Helstu breytingar á fylgi flokka frá síðustu mælingu eru að fylgi Miðflokksins eykst um rúmlega tvö prósentustig milli mánaða, en 9% segjast myndu kjósa flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag og fylgi Sósíalistaflokksins minnkar um rösklega eitt prósentustig, en tæplega 4% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi annarra framboða breytist lítið, eða um 0-0,9 prósentustig. Fjórðungur þeirra sem taka afstöðu segist myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, nær 16% Samfylkinguna, tæplega 12% Vinstri græn og sama hlutfall Pírata. Rúmlega 10% segjast myndu kjósa Viðreisn, 9% Framsóknarflokkinn og tæplega 4% Flokk fólksins. Rúmlega 13% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og tæplega 10% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.

Stuðningur við ríkisstjórn

Tæplega 48% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina og er það svipað hlutfall og í síðustu mælingu.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við fjórum spurningum:

  • „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
  • Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu”
  • Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?”
  • „Styður þú ríkisstjórnina”

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 31. mars 2019. Heildarúrtaksstærð var 6.705 og þátttökuhlutfall var 55,4%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,6%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Nánari upplýsingar um Þjóðarpúls Gallup