Ferðamannapúlsinn mældist 85,9 stig af 100 stigum mögulegum í júlí, rúmum þremur stigum hærra en á sama tíma í fyrra. Ferðamannapúlsinn er metinn út frá fimm undirþáttum: heildaránægju með ferðina, líkum á að mæla með Íslandi sem áfangastað, skynjun á gestrisni Íslendinga, hvort að ferðin hafi uppfyllt væntingar og hvort að ferðin hafi verið peninganna virði.

Ferðamannapúls_Júlí 2019

Ferðamenn frá Póllandi og Bandaríkjunum ánægðastir

Ef ferðamannapúlsinn er skoðaður eftir þjóðerni má sjá að ferðamenn frá Póllandi (89,6 stig) og Bandaríkjunum (87,9 stig) voru með hæstu einkunn. Ferðamenn frá Indlandi (86,8), Kanada (86,3 stig) og Sviss (85,4 stig) voru einnig meðal þeirra ferðamanna sem voru ánægðastir með Íslandsferðina í júlí.

Ferðamannapúls Júlí 2019 eftir þjóðerni

Ferðamenn ánægðari með verðlagið

Töluverð aukning var í líkum á að mæla með Íslandi sem áfangastað (+4,2 stig), mati á hvort ferðin hafi verið peninganna virði (+3,6 stig) og mati á hvort að væntingar fyrir Íslandsferðina hafi verið uppfylltar (+4,7 stig), miðað við sama mánuð í fyrra.

Ferðamannapúls_Júlí 2019 undirþættir

* Ferðamannapúlsinn er samstarfsverkefni Isavia, Ferðamálastofu og Gallup og byggja mælingar á netföngum ferðamanna sem fara í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Nánari upplýsingar um Ferðamannapúlsinn