Helsta breyting á fylgi flokka milli mælinga er að fylgi Samfylkingarinnar eykst um ríflega 2 prósentustig. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0-0,8 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Rösklega 29% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag og hefur það hlutfall farið stöðugt hækkandi frá síðustu Alþingiskosningum. Ríflega 22% kysu Sjálfstæðisflokkinn, nær 14% Viðreisn, næstum 9% Miðflokkinn, rösklega 7% Flokk fólksins, liðlega 6% Framsóknarflokkinn, tæplega 5% Sósíalistaflokkinn, rúmlega 3% Vinstri græn og Pírata og nær 1% aðra flokka.

Um 66% þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina.

2025-05-05 12_40_27-Puls_0525_Fylgi_flokka.pdf

Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér