Helstu breytingar milli mánaða eru að fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst um liðlega 2 prósentustig og Framsóknarflokksins um rúmlega prósentustig á sama tíma og fylgi Flokks fólksins minnkar um rúmt prósentustig. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka milli mánaða, eða á bilinu 0,1-1,3 prósentustig, og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Rösklega 28% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag, tæplega 24% Sjálfstæðisflokkinn, næstum 18% Miðflokkinn, tæplega 11% Viðreisn, nær 7% Framsóknarflokkinn og um 4% Vinstri græn og Flokk fólksins. Tæplega 3% kysu Sósíalistaflokk Íslands og næstum 2% Pírata.

Ríflega 5% myndu skila auðu eða ekki kjósa og rúmlega 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp.

Fylgi_mai2026_Throunarmynd


Nánari fylgisgreiningu má sjá hér og þróun og þingsæti hér