Miðvikudaginn 19. febrúar verður Umhverfisráðstefna Gallup haldin þriðja árið í röð, í Norðurljósasal Hörpu. Á ráðstefnunni verða nýjar niðurstöður Umhverfiskönnunar Gallup kynntar, en þar verður farið yfir viðhorf og hegðun Íslendinga í tengslum við umhverfismál og loftslagsbreytingar.

Í kjölfarið munu samstarfsaðilar Gallup halda örerindi og kynna hvernig þau horfa til framtíðar varðandi umhverfismál og loftslagsbreytingar.

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson flytur ávarp og ráðstefnustjóri er Arna Frímannsdóttir frá Gallup.

Nánari upplýsingar og skráning