Væntingavísitala Gallup lækkar um tæp 20 stig milli mælinga og mælist 75,3 stig í febrúar. Gildi vísitölunnar nú er 15 stigum lægra en á sprengidaginn í fyrra og leita þarf aftur til loka árs 2013 til að finna lægra gildi vísitölunnar.
Það að Væntingavísitala Gallup sé á tilteknum tíma 100 (lárétta línan á myndinni) merkir að það eru jafn margir jákvæðir og neikvæðir svarendur. Ef hún er hærri eru fleiri jákvæðir og ef hún er lægri eru fleiri neikvæðir.
Væntingavísitala Gallup er byggð á fimm þáttum:
- Mati á núverandi efnahagsaðstæðum
 - Væntingum til efnahagslífsins eftir 6 mánuði
 - Mati á núverandi ástandi í atvinnumálum
 - Væntingum til ástands í atvinnumálum eftir 6 mánuði
 - Væntingum til heildartekna heimilisins eftir 6 mánuði
 
