Væntingavísitala Gallup lækkar um þrjú stig í vætutíð síðustu vikna og mælist nú 104,1 stig. Gildi vísitölunnar nú er ríflega 17 stigum lægra en í júnímánuði í fyrra.

Væntingavísitala Gallup júní 2018

Það að Væntingavísitala Gallup sé á tilteknum tíma 100 (lárétta línan á myndinni) merkir að það eru jafn margir jákvæðir og neikvæðir svarendur. Ef hún er hærri eru fleiri jákvæðir og ef hún er lægri eru fleiri neikvæðir.

Væntingavísitala Gallup er byggð á fimm þáttum:

  • Mati á núverandi efnahagsaðstæðum
  • Væntingum til efnahagslífsins eftir 6 mánuði
  • Mati á núverandi ástandi í atvinnumálum
  • Væntingum til ástands í atvinnumálum eftir 6 mánuði
  • Væntingum til heildartekna heimilisins eftir 6 mánuði

Nánari upplýsingar um Væntingavísitölu Gallup