Mælikvarðinn Væntar heildartekjur byggir á eftirfarandi spurningu: „Telur þú að heildartekjur heimilisins muni aukast, haldast óbreyttar eða minnka næstu 6. mánuði?“.

Væntar heildartekjur er partur af samfélagsmælikvarða Gallup og eru niðurstöður birtar mánaðarlega. Samfélagsmælikvarði Gallup byggir á spurningum sem snúa að lífskjörum og líðan fólks. Mælingin byggir á úrtaki úr Viðhorfahópi Gallup. Viðhorfahópurinn samanstendur af um 30.000 einstaklingum sem svara könnunum á netinu. Tryggt er að hópurinn endurspegli íslensku þjóðina og með það að leiðarljósi er viðurkenndum aðferðum beitt til að tryggja gæði úrtaksins.