Frá innsýn til aðgerða
Gallup Access er kannana- og fræðslulausn sem hjálpar stjórnendum að skapa heilbrigt starfsumhverfi, efla helgun starfsfólks og ná betri árangri.
Lausnin sameinar mælingar, fræðslu, rannsóknir Gallup og ráðgjöf á einum stað. Markmiðið er ekki aðeins að mæla starfsumhverfið heldur að hjálpa vinnustöðum að þróast og ná varanlegum árangri.
Hvers vegna helgun?
Helgun starfsfólks er einn sterkasti mælikvarðinn á árangur vinnustaða.
Gallup skilgreinir helgun sem starfsfólk sem vinnur af ástríðu, er tilfinningalega tengt vinnustaðnum og leggur sig fram í starfi sínu á hverjum degi.
Rannsóknir Gallup sýna að helgun starfsfólks tengist aukinni framleiðni, betri upplifun viðskiptavina, minni starfsmannaveltu og færri fjarvistum, auk þess sem hún styður við aukinn rekstrarárangur og vellíðan starfsfólks.
Helgun er því ekki aðeins mælikvarði á líðan heldur mikilvægur drifkraftur árangurs á vinnustöðum.
Mældu það sem skiptir máli
Kjarninn í Gallup Access er Q12®, mælitæki Gallup fyrir helgun starfsfólks sem byggir á áratuga rannsóknum á milljónum starfsmanna og þúsundum vinnustaða um allan heim.
Q12® mælir hversu vel vinnustaðurinn mætir lykilþörfum starfsfólks og veitir stjórnendum skýra mynd af því hvað gengur vel og hvar tækifæri eru til úrbóta.
Q12® hjálpar stjórnendum að skilja hvort starfsfólk hafi skýrar væntingar, stuðning, viðurkenningu og tækifæri til vaxtar og þróunar.
Þegar þessum þörfum er mætt eykst helgun starfsfólks og líkur á sterkari vinnustaðamenningu, meiri framleiðni, betri þjónustu og betri rekstrarniðurstöðum.
Með Gallup Access geta stjórnendur fylgst með þróuninni yfir tíma og metið hvort aðgerðir séu að skila tilætluðum árangri.
Fleira en helgunarmælingar
Gallup Access styður einnig við fjölbreyttar mælingar sem hjálpa vinnustöðum að fylgjast með þróun starfsumhverfisins og vegferð starfsfólks:
- Púlskannanir
- Stjórnendamöt
- Onboarding-kannanir
- Exiting-kannanir
- Sérsniðnar kannanir eftir þörfum
Frá niðurstöðum til aðgerða
Gögn breyta ekki vinnustöðum. Aðgerðir gera það.
Gallup Access hjálpar stjórnendum að skilja niðurstöðurnar, forgangsraða verkefnum og vinna markvisst með næstu skref.
Stjórnendur fá aðgang að skýrslum, samanburði, tillögum að áherslum, fræðsluefni og verkfærum sem styðja við umbótastarf og eftirfylgni.
Markmiðið er að breyta innsýn í aðgerðir sem skipta máli fyrir starfsfólk og vinnustaðinn.
Fræðsla fyrir stjórnendur
Gallup Access er jafnframt öflugur fræðsluvettvangur fyrir stjórnendur.
Stjórnendur fá aðgang að rannsóknum Gallup, greinum, myndböndum, námskeiðum og hagnýtum stjórnunartólum sem styðja þá í daglegu starfi.
Auk þess veitir Gallup Access aðgang að gervigreindarlausn sem byggir á rannsóknum og hugmyndafræði Gallup og hjálpar stjórnendum að vinna með niðurstöður og móta aðgerðir.
Markmiðið er að hjálpa stjórnendum að verða öruggari í hlutverki sínu og auðvelda þeim að leiða fólk og teymi til árangurs.
Vegferð starfsfólks frá ráðningu til starfsloka
Gallup Access styður alla vegferð starfsfólks.
Onboarding - Fylgstu með hvernig nýtt starfsfólk upplifir móttöku og aðlögun fyrstu mánuðina í starfi og greindu tækifæri til umbóta í nýliðunarferlinu.
Exiting - Lærðu af reynslu þeirra sem hætta störfum og fáðu dýpri innsýn í hvað styður við jákvæða upplifun starfsfólks.
Öryggi gagna og trúnaður
Traust er forsenda góðra mælinga
Við leggjum ríka áherslu á að starfsfólk geti tekið þátt af öryggi og treyst því að svör þeirra séu meðhöndluð af fyllsta trúnaði.
- Hvorki Gallup á Íslandi né vinnustaðurinn hafa aðgang að svörum einstakra svarenda.
- Ekki er hægt að hlaða niður eða skoða hrágögn með persónugreinanlegum svörum.
- Vinnustaðurinn sér ekki hverjir hafa svarað könnunum.
- Niðurstöður eru aðeins birtar þegar nægilegur fjöldi svara liggur fyrir.
- Meðaltöl og niðurstöður eru ekki sýnd nema að lágmarki fjórir einstaklingar hafi svarað.
- Aðgangi að niðurstöðum er stýrt með skýrum heimildum.
Markmiðið er að skapa traust þannig að starfsfólk geti tjáð skoðanir sínar af hreinskilni og vinnustaðurinn fái áreiðanlega mynd af stöðunni.
Hluti af heildrænni nálgun Gallup
Gallup Access & Q12 er einn af þremur lykilþáttum í heildrænni nálgun Stjórnendaráðgjafar Gallup að árangursríkari vinnustað.
Helgun - Með Gallup Access og Q12® mælum við starfsumhverfið og greinum lykilþarfir starfsfólks.
Styrkleikar - Með CliftonStrengths® hjálpum við fólki að uppgötva og virkja það sem það gerir best.
Frammistaða og þróun - Með starfsþróunarsamtölum breytum við innsýn í samtöl, aðgerðir og árangur.
Saman mynda þessar lausnir heildstæða nálgun sem eflir helgun, styrkleika og þróun og leggur grunn að varanlegum árangri.
Af hverju Gallup Access?
✓ Byggt á áratuga rannsóknum Gallup
✓ Q12® – eitt þekktasta mælitæki heims fyrir helgun starfsfólks
✓ Fræðsla, ráðgjöf og mælingar á einum stað
✓ Aðgerðir og eftirfylgni í stað eingöngu mælinga
✓ Stuðningur við alla vegferð starfsfólks
✓ Örugg meðferð gagna og trúnaður við svarendur
✓ Lausn sem hjálpar stjórnendum að breyta innsýn í árangur
Hafðu samband
Við hjálpum vinnustöðum að nýta Gallup Access til að mæla það sem skiptir máli, efla helgun starfsfólks og skapa árangur til lengri tíma.
📧 stjornendaradgjof@gallup.is




