Samtöl sem efla árangur, þróun og helgun

Hjá Stjórnendaráðgjöf Gallup hjálpum við vinnustöðum að þróa starfsþróunarsamtöl sem styðja við þarfir starfsfólks, markmið vinnustaðarins og dagleg verkefni.

Samtölin byggja á rannsóknum Gallup á helgun, styrkleikamiðaðri nálgun og árangursríkri stjórnun og eru hönnuð til að styrkja tengsl stjórnenda og starfsfólks, efla þróun og skapa skýrar væntingar.

Markmiðið er að færa áhersluna frá árlegum starfsmannasamtölum yfir í markviss og regluleg samtöl sem styðja við vöxt, framfarir og árangur allt árið um kring.

Af hverju ný nálgun?

Vinnuumhverfið breytist hraðar en áður og starfsfólk kallar eftir meiri upplýsingagjöf, stuðningi og leiðsögn. Þess vegna þurfa samtöl stjórnenda og starfsfólks að vera reglulegri og markvissari en hefðbundin árleg starfsmannasamtöl.

Góð starfsþróunarsamtöl skapa skýrar væntingar, efla tengsl og traust og veita starfsfólki þann stuðning og leiðsögn sem þarf til að ná árangri.

Frá árlegum samtölum yfir í regluleg samtöl

Engin ein lausn hentar öllum vinnustöðum og því mótum við starfsþróunarsamtölin í samstarfi við hvern viðskiptavin.

Í verkefninu vinnum við meðal annars með:

  • Fjölda og tíðni samtala
  • Innihald og áherslur samtala
  • Samtalsramma og verkfæri
  • Skráningu og utanumhald
  • Þjálfun stjórnenda
  • Innleiðingu og eftirfylgni

Markmiðið er að skapa einfalt, skýrt og gagnlegt samtalsferli sem styður við bæði starfsfólk og stjórnendur.

Þjálfun fyrir stjórnendur

Góð samtöl gerast ekki af sjálfu sér. Við þjálfum stjórnendur í þeirri færni sem þarf til að eiga árangursrík þróunarsamtöl og veita uppbyggilega endurgjöf.

Markmiðið er að gera stjórnendur öruggari í samtölum sem styðja við þróun, helgun og árangur.

Hluti af heildrænni nálgun Gallup

Starfsþróunarsamtöl eru einn af þremur lykilþáttum í heildrænni nálgun Stjórnendaráðgjafar Gallup að árangursríkari vinnustað.

Helgun

Með Gallup Access og Q12® mælum við starfsumhverfið og greinum þarfir starfsfólks.

Styrkleikar

Með CliftonStrengths® hjálpum við fólki að uppgötva og virkja það sem það gerir best.

Frammistaða og þróun

Með starfsþróunarsamtölum breytum við innsýn í samtöl, aðgerðir og árangur.

Saman mynda þessar lausnir heildstæða nálgun sem eflir helgun, styrkleika og þróun og leggur grunn að varanlegum árangri.

Af hverju starfsþróunarsamtöl frá Gallup?

✓ Byggja á rannsóknum Gallup um helgun og árangur

✓ Sameina þarfir starfsfólks og markmið vinnustaðarins

✓ Styðja við styrkleikamiðaða stjórnun

✓ Efla tengsl stjórnenda og starfsfólks

✓ Skapa skýrari væntingar og markvissari endurgjöf

✓ Stuðla að þróun, vexti og meiri árangri

Hafðu samband

Við hjálpum vinnustöðum að móta og innleiða starfsþróunarsamtöl sem henta starfseminni, menningunni og markmiðunum hverju sinni.

📧 stjornendaradgjof@gallup.is

Skýrari væntingar.

Markvissari þróun.

Meiri árangur.