Virkjaðu það besta í fólkinu þínu

CliftonStrengths® hjálpar einstaklingum, stjórnendum og teymum að uppgötva og virkja sína náttúrulegu styrkleika.

Styrkleikamiðuð nálgun byggir á einfaldri hugmynd: Fólk nær mestum árangri þegar það fær tækifæri til að nýta það sem það gerir best. Þegar fólk þekkir eigin styrkleika og styrkleika annarra skapast meiri sjálfsþekking, sterkari tengsl og betri árangur.

Hvað eru styrkleikar?

Við erum öll ólík.

Það sem veitir einum einstaklingi orku getur verið krefjandi fyrir annan. Við hugsum á ólíkan hátt, nálgumst verkefni með mismunandi hætti og byggjum tengsl á ólíkan hátt.

CliftonStrengths® hjálpar fólki að bera kennsl á náttúrulega hæfileika sína og læra hvernig hægt er að umbreyta þeim í styrkleika sem nýtast í starfi og lífi.

Markmiðið er ekki að eyða mestum tíma í að laga veikleika heldur að byggja á því sem þegar er sterkt.

Frá styrkleikamati til árangurs

Styrkleikamat er aðeins fyrsta skrefið.

Raunverulegur ávinningur skapast þegar fólk lærir að skilja styrkleika sína og nýta þá markvisst í daglegu starfi. Þess vegna leggjum við áherslu á styrkleikasamtöl, stjórnendaþjálfun og vinnustofur sem hjálpa einstaklingum og teymum að umbreyta innsýn í aðgerðir og árangur.

Styrkleikavegferðinni má skipta í þrjú skref:

Nefna (Name It) - Uppgötva og skilja eigin styrkleika.

Eigna (Claim It) - Skilja hvernig styrkleikarnir birtast í hegðun, vinnubrögðum og samskiptum og hvernig þeir styðja við árangur.

Stefna (Aim It) - Nýta styrkleikana markvisst til að ná markmiðum, takast á við áskoranir og styðja við persónulegan og faglegan vöxt.

Til að styðja þessa vegferð bjóðum við meðal annars upp á:

  • CliftonStrengths® styrkleikamat
  • Einstaklingssamtöl með styrkleikaþjálfa
  • Stjórnendaþjálfun
  • Teymisvinnustofur
  • Framhaldsþjálfun fyrir stjórnendur og teymi

Markmiðið er að styrkleikar verði hluti af daglegum ákvörðunum, samskiptum og þróun starfsfólks og teyma.

Fyrir einstaklinga

Þegar fólk kynnist eigin styrkleikum öðlast það betri skilning á því hvað gefur því orku, hvernig það vinnur best með öðrum og hvar það getur lagt mest af mörkum.

Niðurstaðan er aukin sjálfsþekking, meira sjálfstraust og skýrari sýn á eigið framlag.

Fyrir stjórnendur

Bestu stjórnendur þekkja styrkleika fólksins sem þeir leiða.

Með CliftonStrengths® fá stjórnendur betri skilning á því hvað hvetur starfsfólk þeirra, hvernig fólk hugsar, byggir tengsl og nálgast verkefni.

Styrkleikamiðuð stjórnun hjálpar stjórnendum að:

  • Efla helgun starfsfólks
  • Veita markvissari endurgjöf
  • Styðja við þróun einstaklinga
  • Auka ábyrgð og frumkvæði
  • Byggja upp sterkari teymi

Þegar stjórnendur skilja hvað fær fólk til að blómstra verða samtölin markvissari og árangurinn meiri.

Fyrir teymi

Sterk teymi verða ekki til vegna þess að allir eru eins.

Þau verða sterk vegna þess að ólíkir styrkleikar vinna saman.

Þegar teymi fá sameiginlegt tungumál til að ræða styrkleika skapast aukið traust, betri samvinna og sterkari liðsheild. Um leið eykst helgun og líkurnar á meiri árangri.

CliftonStrengths í Gallup Access

CliftonStrengths® er hluti af Gallup Access og veitir einstaklingum, stjórnendum og mannauðssérfræðingum aðgang að styrkleikaskýrslum, teymisyfirlitum og verkfærum sem styðja við styrkleikamiðaða stjórnun og þróun starfsfólks.

Með aukinni sýn á styrkleika einstaklinga og teyma verður auðveldara að efla samstarf, byggja upp sterkari teymi og skapa aðstæður þar sem fólk fær tækifæri til að gera meira af því sem það gerir best.

Við viljum að þú náir árangri

Markmiðið er ekki aðeins að fólk þekki styrkleika sína heldur að það nýti þá markvisst í starfi.

Við vinnum með einstaklingum, stjórnendum og teymum að því að byggja upp styrkleikamiðað starfsumhverfi þar sem fólk fær tækifæri til að gera meira af því sem það gerir best og ná meiri árangri.

Hluti af heildrænni nálgun Gallup

CliftonStrengths® er einn af þremur lykilþáttum í heildrænni nálgun Stjórnendaráðgjafar Gallup að árangursríkari vinnustað.

Helgun - Með Gallup Access og Q12® mælum við starfsumhverfið og greinum lykilþarfir starfsfólks.

Styrkleikar - Með CliftonStrengths® hjálpum við fólki að uppgötva og virkja það sem það gerir best.

Frammistaða og þróun - Með starfsþróunarsamtölum breytum við innsýn í samtöl, aðgerðir og árangur.

Saman mynda þessar lausnir heildstæða nálgun sem eflir helgun, styrkleika og þróun og leggur grunn að varanlegum árangri.

Af hverju CliftonStrengths®?

✓ Byggir á áratuga rannsóknum Gallup

✓ Eykur sjálfsþekkingu og sjálfstraust

✓ Styður við betri stjórnun og þróun starfsfólks

✓ Eflir samvinnu og árangur teyma

✓ Hluti af heildrænni nálgun Gallup að árangursríkum vinnustöðum

Byrjaðu styrkleikavegferðina í dag

Hægt er að kaupa CliftonStrengths® styrkleikamat í gegnum Stjórnendaráðgjöf Gallup.

📧 stjornendaradgjof@gallup.is

Bóka samtal við styrkleikaþjálfa

Tómas Bjarnason - Bóka samtal

Auðunn Gunnar Eiríksson - Bóka samtal

Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir - Bóka samtal

Rannveig Gústafsdóttir - Bóka samtal

Dagný Bolladóttir - dagny@gallup.is

Hafðu samband

Við hjálpum vinnustöðum að byggja upp styrkleikamiðað starfsumhverfi þar sem fólk fær tækifæri til að gera meira af því sem það gerir best.

📧 stjornendaradgjof@gallup.is

Uppgötvaðu styrkleikana.

Nýttu þá markvisst.

Náðu meiri árangri.